Kjaramál


Núna keppast aðilar vinnumarkaðarins að skrúfa upp verðlag á Íslandi.
Þetta kjarasamningakjaftaði er svo gamaldags og vitlaust að skömm er að. Hækkun launa kallar á hækkun á vörum og þjónustu og það kallar á hækkun á vísitölu sem kallar á hækkun á lánum, og launahækkunin er farin út um gluggan og þú hefur það ver en fyrir launahækkunina. Það sem ASÍ og VMSÍ ættu að gera er að skrifa á ennið á samningafólki sínu ÍSLAND DÝRAST Í HEIMI.

Það eru fleirihundruð manns sitjandi í samninganefndum út um allt land á háum launum, bullandi yfirvinnu. Venjulegu fólki er skikkað til að greiða félagsgjöld til þess að þetta fólk geti setið á samingarfundi dögum saman. Og hvað er verið að ræða? Jú hvort að sá sem er búinn að vinna í 3 ár á sama stað eigi að fá 500 kr meira á mánuði en sá sem er búin að vinna í 2 ár. Svo er leitað til ríkisstjórnar um sérstakar aðgerðir. Og þær verða að hækka atvinnuleysibætur( verkalýsfélögin sjá um að greiða bæturnar og fá prósentur af bótunu frá ríkinu) og eitthvað fleira blabla. T.d blabla Así fái 4 milljónir til verðlagseftirlits á matvörumarkaði. Við vitum öll hvernig það er. Halló Bónus, þetta er hjá ASÍ við komum á morgun til að gera verðkönnun hjá þér, Jájá á sömu vörum og síðast. Nú eru kjúklingabringurnar sem þið flytið inn sjálfir ekki til hjá þér, þá sleppum við þeim ekkert mál. Vel á minnst verður Bónus ekki með auglýsingu í ASÍblaðinu okkar eins og síðast. Já flott þið furfið ekkert að hafa áhyggjur þetta verður hagstæð könnun fyrir ykkur. Nei nei við munum ekkert segja að allt hafi hækkað um 12% hjá ykkur frá því í síðasta mánuði.

Á Íslandi er til batterí sem heitir Vinnumálastofnun, getur hún ekki reiknað út lámarkslaun, því að það er einginn á Íslandi að fá greitt eftir taxta sem samið er um í kjarasamningum. Þarna getum við hækkað laun fólksins með því að hætta að greiða félagsgjöld, orflofsheimilissjóðsgjald, sjúkrasjóðsgjald og fleira blabla sem flestir launþegar fá aldrei til bakka. Svo ekki sé minst á mafíuna lífeyrissjóðina. Dæmi, maður greiðir í lífeyrissjóðð frá 15 ára aldri um það bil 10% af launum ( launþeginn greiðir 4 og vinnuveiandi 6). Þessi maður er lánsamur og vinnur til 67 ára og á konu og 3 krakka. Svo kemur reiðarsalagið, hann deyr daginn áður en hann verður 67 ára. Ekjan fær eknalífeyrir í tvö ár sem er sama upphæð og maðurinn hefði fengið hefði hann lifað. Börnin eru öll komin yfir 18 ára og fá ekki neitt. Ef að konan kvænist aftur innan tveggja ára þá falla greiðslur niður og lífeyrirssjóðurinn hirðir peninganna.

Einnig er starfandi kjaradómur sem áhveður laun æðstu embættismanna Íslands. Mér sýnist þeir hafa það bara nokkuð gott þingmenn, dómarar,ráðherrar, ráðuneytisstjórar og forsetinn, þannig að Kjaradómi er vel treystandi til að áhveða lámarkslaun í landinu.

Og afhverju er verið að hafa verðtryggingu bara fyrir lánastofnanir það er bara bull, bull, bull.

Það sem gildir í dag er Báknið burt, betra líf
IHG


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband